Gunnar Gunnarsson og Nóbelsverðlaunin.
Mér brá þegar ég las um Gunnar Gunnarsson rithöfund og Nóbelsverðlaunin í grein Morgunblaðsins um bók Hannesar Hólmsteins Gissurasonar, vissi að ljóminn af Ragnari í Smára var kannski ekki allur sem sýndist og smjörið jafnvel smjörlíki. Ég vissi að hann hefði verið örlaganorn í lífi margra, svo sannarlega í minni fjölskyldu. En að Ragnar hefði haft Nóbelsverðlaunin af Gunnari og Íslandi fyllti mig viðbjóði. Gunnar Gunnarsson nógu góður að heimsækja í kaffi, borða með í húsi hans. Í lagi að gefa út bækur Gunnars, en Ragnar þurfti að afþakka "síðustu kvöldmáltíðina" til að koma sér á fund manna sem síðan sviku íslensku þjóðina og Gunnar í ógeðslegu leynimakki. Louisa Matthíasdóttir listmálari (tengdamóðir mín) bjó sín seinustu ár hjá okkur hjónunum. Einn hlutur virtist liggja þungt á Louisu og oft í huga. Fyrir seinni heimstyrjöldina eða í byrjun hennar höfðu Louisa og Steinn Steinarr skáld unnið að barnabók, Louisa gert myndirnar og Steinn ljóðin, um svaðilför stúlku sem síðan var bjargað af afa sínum.
Ragnar í Smára átti að gefa bókina út, nema að hún kom aldrei út, Ragnar týndi handritinu. Hvernig Lousia sagði frá þó hún segði það aldrei beint fannst mér að Ragnar hefði aldrei týnt neinu og þetta sært Louisu miklu sári, jafnvel ástæðan að hún fór vestur um haf.
Ég, án þess að vita komst að þeirri niðurstöðu að Ragnar hefði viljað aðra í sviðsljósið, Nínu Tryggvadóttir listmálara, Nína á réttum stað í pólitíkinni. Ég þykist vita að síðan hafi þessi ákvörðun Ragnars fylgt Louisu sem skuggi á Íslandi allan hennar starfsferil og lengur. Skipt litlu máli hvaða hæðum Louisa náði erlendis sem listamaður, oftast önnur útkoma á Íslandi. Ég þykist sjá þessi viðhorf í skrifum um Louisu á Íslandi í dag. Ég vil sérstaklega taka fram að ég tel Nínu einn meiri listamanna Íslands og sorglegt að þetta varð svona, minnir óneitanlega á Kiljan og Gunnar.
Fyrir stríð unnu Nína og Louisa saman á vinnustofu, álitamál hvor hafði áhrif á hvora þó þær yrðu ólíkir listamenn seinna. Þegar Nína vildi flytja til Bandaríkjanna komst hún ekki vegna pólitískra tengsla sinna. Þá skrifaði Lousia bréf til yfirvalda fyrir hönd Nínu. Hvaða áhrif það bréf hafði hef ég ekki hugmynd en ekki eyðilagði það, Nína komst inn.
Ég varð fyrir skrýtni lífsreynslu fyrir áratugum sem tengist aftur bók Hannesar Hólmsteins, þar minnst á málverk á Gljúfrasteini eftir Nínu Tryggvadóttur. Í kringum 1980 bjuggum við hjónin á Íslandi og tengdaforeldrarnir í heimsókn um sumar (þau bjuggu í Bandaríkjunum). Þeim boðið á Gljúfrastein og við hjónakornin flutum með í dýrlegu sumarveðri.Til að gera stutta sögu styttri voru málverkin á heimilinu skoðuð, þar á meðal mynd eftir “Nínu” í svefnherberginu. Á leiðinni heim sagði Louisa: “ég málaði þessa mynd.”
Louisa talaði ítrekað um þessa bók með söknuði eins og eitthvað væri óklárað.
Eftir lát Louisu stóð fjölskyldan að sýningu í Hafnarborg Hafnarfirði með málverkum eftir konu mína Temmu Bell og foreldra hennar, Leeland Bell og Louisu. Án okkar vitundar var komið með handritið að þessari bók og sett til sýnis. Jóhannes Nordal fyrrverandi Seðlabankastjóri hafði fengið það hjá föður sínum Sigurði Nordal sem einnig kemur við sögu í bók Hannesar. Hvernig þetta handrit komst til Sigurðar veit ég ekki. Við hjónin fengum svo handritið og það gefið út í samráði við fjölskyldu Steins Steinarrs.
Og áfram heldur frásögnin, við komin að afa mínum Jóhannesi Kjarval listmálara og örlagavaldinum Ragnari. Ragnar átti málverk eftir afa sem Museum of Modern art í New York vildi kaupa á sínum tíma, Ragnar neitaði. Hver væri orðstír Íslands ef að sú mynd héngi þar? Orðstír Íslands ef þjóðin ætti tvö Nóbelsskáld?
Frægð íslenskra listmálara ef hreppapólitík heima fyrir hefði ekki ítrekað eyðilagt?
Hversvegna gat valdið á Íslandi ekki elskað og dáð litla listakonu sem gerði allt sem hún gat á Manhattan til að kynna sitt land og leit alltaf á sig sem Íslending? Hvers vegna sleppti Listasafn Íslands nýlega mynd eftir hana í sýningu um íslenska myndlist, hér í Bandaríkunum, þegar sýningin fór til Rússlands? Sveif andi Ragnars yfir þeirri ákvörðun? Hversvegna eiga ferðamenn erfitt með að sjá málverk eftir Louisu á söfnum á Íslandi þegar þeir sækja söfn á Íslandi?
Fjölskylda mín stendur í málaferlum við Reykjavíkurborg vegna dánarbús afa míns Jóhannesar Kjarval listmálara. Ekki ætla ég að skrifa um það hér, hægt að fá upplýsingar á www.kjarval.blogspot.com, en þar kemur Ragnar í Smára einnig við sögu og mig grunar meir en ég veit um eða get fært sönnur fyrir. Hann til dæmis á að hafa útvegað afa mínum húsnæðið í Sigtúni 7, og borgað leigu af, vinnustofunni sem síðan var tæmd af Reykjavíkurborg. Gylfi Þ. Gylfason f.v. menntamálaráðherra segir í skýrslu, Ragnar upphafsmanninn að byggingu Kjarvalshúss á Seltjarnarnesi en ekki foreldra mína sem var hið rétta. Virtist mál að Ragnar væri upphafsmaðurinn í fléttu valdsins að ráða og gera aðra valdalausa. Valdið ráðskast með hverjir fá nóbelsverðlaunin, hvaða listmálarar eru þjóðinni þóknanlegir, virðist vilja ráða hlutum sem er ekki þeirra að ráða. Einstaka sinnum sjáum við á bak við tjöldin og verður flökurt.